Pínu púkó, en samt pínu gaman
Æi, já, þetta er soldið púkó...
Ég var að koma heim úr tökum á Það var lagið...! Vinnustaðnum var semsé sérstaklega boðið ásamt einhverjum fleirum, og ég eiginlega ákvað bara að skella mér. Ekki það oft sem maður getur horft á Hemma Gunn live taka bakföll úr hlátri, það er alveg show út af fyrir sig.
Það voru ekkert nema kallar að syngja; Felix Bergs og Viddi (held hann heiti það) úr Greifunum, og svo var Hreimur (!) og Geiri Sæm í "hinu liðinu". Ok, Birta, ef þú ert að lesa þetta: Já, hann söng Hann langar í sanseraðan sportbíl! Ég eiginlega bara fór að hlæja, sko... ;)
En þetta var voða gaman. Við vorum þarna 5 gellur saman úr vinnunni, tókst að gera okkur alveg mátulega hallærislegar. Gaman að því. Hitti svo auðvitað hana Ástu skástu, sem hleypur um allt með púðurdollu og tissjú í hléunum.
En... Það eru að koma jól. Öllum innkaupapokum í búðarvinnunni minni var skipt út í dag fyrir jólapoka, og helv. jólalögin í útvarpinu aaaallaaaan daaagiiiinnn eru að gera alla brjálaða. Nema Guðrúnu, en hún er líka pínu skrýtin. ;)
Mér persónulega finnst að það ætti að bíða með allt svona rugl þar til í fyrsta lagi þegar aðventan byrjar, sem er einmitt n.k. sunnudag.
Hver á svona bágt með að halda í sér þangað til þá?
Ekki ég. Og ekki við hjónin. Það er nokkuð klárt.. Enda er asnalegt að fá leið á jólunum áður en 1. des er kominn, er það ekki?
Æi, ég er orðin syfjuð og rugluð... Segi bara bless í bili.....
Bless.

3 Comments:
At 10:57 f.h.,
Nafnlaus said…
enn betra væri að sleppa algjörlega þessu jólastússi þar til um miðjan desember! sérstaklega jólalögunum!!! maður fær ennþá meira leið á þeim heldur en öllu heimsins skrauti!!! allavega ég:)
At 6:26 e.h.,
Nafnlaus said…
Heyrðu ég er búin að fara tvisvar í það var lagið !! Það er bara stuð, en auðvitað verður að vera skemtilegt fólk í þættinum !! ;o)
Bara gaman !!
At 12:51 e.h.,
Birta said…
Bwaahahahaha!!
Snilld er það!
Ég tók actually andköf :)
Oj já, það er búið að skreyta allt hérna í vinnunni, og jólapósturinn er farinn að sýna sig.
Ég fer engan veginn í jólaskap fyrr en um miðjan des.
Skrifa ummæli
<< Home