Veikindi og gaman
Þar kom að því. Ég vissi að það var orðið skuggalega langt síðan Sá Stutti var veikur síðast.
Sem betur fer er þetta nú ekkert alvarlegt, 38,7° hiti í gærkvöldi eftir að ég kom heim úr vinnu.
Ég var nú sjálf eitthvað sloj í gær, en þó laus við allan hita. Held ég.
Ég er líka með náttúrulegustu mótstöðu í mér sem hægt er að finna. ;)
Ég var að finna komment á "Kvíða"innleggið mitt, þar sem einhver anonymous segir að ég eigi ekkert að kvíða fæðingunni og verkjunum, og svo kom einhver voðalega hippaleg skýring á því. Þessi sama manneskja segir að hún hafi nú aldrei "komið manneskju í gegnum klofið á sér" sjálf, en er samt svo væn að koma með þessa hughreystingu.
...Jújú, voða fallega meint, and I appreciate it and all, en þið sem hafið ALDREI fætt barn...
...Verið ekkert að tjá ykkur um þetta.
Ég hef hins vegar gert það, og veit því nákvæmlega hverju ég á að kvíða.
Það var ekki vottur af kvíði í mér þegar ég var að fara að eiga Stubbinn minn, því þá hafði ég ekki hugmynd um hvað þetta var. Maður getur ekki kviðið því sem maður þekkir ekki.
Ég hef verið í ansi miklum og misárangursríkum rökræðum út af þessu á þessu blessaða Barnalandi, og maður sér alveg á svörunum hverjar þekkja þetta af eigin raun. Öðrum finnst bara fáránlegt að "maður skuli kvíða eins náttúrulegum hlut og fæðingu.."
Well, screw them. Þær eru bara hepnar að upplifa þetta ekki, og megi þeim ganga allt í haginn.
As we speak er Stubburinn að horfa á Ísland í bítið, þar sem er verið að leyfa þáttastjórnendum að smakka á einhverjum svona æðislegum frönskum mat. Að sjálfsögðu er rauðvín borið fram með, og þá heyrist í mínum: Oj, ógeðslegt vatn, mamma!!
Hehe, greinilega langt í alkann á þessum bæ!
Ég bíð enn eftir svari vegna vinnu, þessu liði finnst svo voðalega gaman, greinilega, að láta mann bíða nógu andskoti lengi eftir að heyra í þeim. Annars verð ég kannski bara "heimavinnandi" í vetur, svona eins langt og það nær í þessu ástandi. Það er kannski ágætt að maður nái upp smá skammti af hvíld áður en allt skellur á, því eftir það er ekkert nema 3 klst svefnnætur í einhverja mánuði. Það verður gaman...
Well, ég ætla að leyfa litla sjúklingnum mínum að horfa á einhverja mynd á DVD.
Vi hörs...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home