Siðferðispróf
Í þessu prófi er eingöngu ein spurning, en hún er mjög mikilvæg. Ef þú svarar í fyllstu hreinskilni muntu komast að því hvernig siðferðiskennd þín er byggð upp. Í prófinu er velt upp algjörlega uppskáldaðri stöðu og þú þarft að taka afstöðu. Mundu að svarið verður að vera hreinskilið.Vinsamlegast skrollaðu rólega niður og hugsaðu um hverja línu vel og vandlega.
Þú ert í Texas. Í Houston nánar tiltekið. Það ríkir í kringum þig mikið öngþveiti, því á hefur skollið mikill fellibylur og orsakað hræðileg flóð. Þú ert ljósmyndari, þú vinnur hjá stóru dagblaði og ert í miðju þessarar hryllilegu hringiðu. Staðan er svo að segja vonlaus.Þú ert að reyna að taka bestu myndir ferils þíns.Það er brak úr húsum og fólk allt í kringum þig, fljótandi í vatninu. Sumir dragast undir og koma ekki aftur upp. Náttúran sleppir lausum eyðileggjandi krafti sínum. Allt í einu sérðu mann berjast um í vatninu nálægt þér. Hann berst fyrir lífi sínu og reynir á örvæntingarfullan hátt að halda höfðinu upp úr vatninu. Þegar hann flýtur nær þér finnst þér að þú eigir að kannast við hann.Það rennur allt í einu upp fyrir þér hver hann er. Þetta er George W. Bush! Á sama tíma sérðu að ólgandi vatnið er um það bil að færa hann í kaf... að eilífu. Þú hefur tvo valmöguleika: Þú getur bjargað lífi G.W.Bush, eða þú getur tekið myndir sem myndu án efa vinna þér inn Pulitzer verðlaun. Myndir, sem sýna dauða valdamesta manns í heiminum í dag.
Svo hér kemur spurningin, og mundu að þú verður að svara henni í fyllstu hreinskilni:
Hvort myndirðu velja hágæða litafilmu eða klassískan einfaldleikann sem svart/hvítar filmur bjóða upp á?

4 Comments:
At 9:22 e.h.,
Birta said…
Hahaha!! Ég dó úr hlátri :D :D
At 11:52 f.h.,
Nafnlaus said…
HAHAHA:D ég myndi velja klassíska svarthvíta litinn... var ekki hitler annars festur á svarthvíta filmu? :D
At 2:28 e.h.,
Maja said…
Jú, en hann er líka eitthvað til í lit, kallinn. Allavega eigum við World War II in color, þar sem hann kemur fyrir. :D
Bushinn er hinsvegar allt of mikið í lit, mætti alveg fara að dofna í honum...
At 6:42 e.h.,
Nafnlaus said…
hann er samt svarthvítur að innan...úúhhh djúpt mar!
Skrifa ummæli
<< Home