Vááá hvað netið er sloooow...
Æi og jæja. Mætt á netið hjá múttu, but guess what? Eftir 6 daga eða svo verð ég komin með netið heim..!
Jibbíííí!!! Það er sko ekki hægt að vera ólétt, atvinnulaus (sama sem) og hafa ekkert net til að rugla með. Ónei.
Erum að bíða eftir línu frá Vodafone, og ætlum svo að öllum líkindum að vera með svona svala Hive tengingu, þar sem við erum nú alltaf í svona dánlód vitleysu. ;)
Annars lítið að gerast hér, ég var að reyna að læra að prjóna í gær með alveg glötuðum árangri. Held að þetta sé bara ekkert fyrir mig. Fer bara að sauma eða eitthvað í staðinn. Ætlaði líka að redda mér saumavél svo ég geti allavega saumað vöggusett á fína, ófædda barnið mitt. Það verður þá allavega meira en ég gerði þegar ég var ófrísk að Þeim Stutta.... Skömm að þessu.
Hann (Sá Stutti) hefur nú bara verið heima hjá mér alla vikuna, því hann er svo agalega slappur af þessum sýklalyfjum sem hann er á núna. Er að pæla í að fara kannski með hann á morgun, bara svona svo að hann verði ekki alveg vitlaus á þessari inniveru. Annars er búið að vera voða kósý hjá okkur; í morgun vöknuðum við ekkert fyrr en um 9 (sem er bara algjört "útsof" fyrir mér), og þar sem ég hafði gleymt símanum hjá múttu kvöldið áður OG var bíllaus og löt, þá hjálpuðumst við bara að við að baka einhverjar kaffiskonsur og "Saftig Sockerkaka", sem er eiginlega bara sandkaka með fínu nafni. Þannig að Makinn fær eitthvað gott í mallakút eftir kvöldmatinn í kvöld. ;)
Það var ekkert fyrr en einhvern tímann langt eftir hádegi sem við nenntum að rífa okkur úr our jammies, bursta tennurnar og hlaupa út í strætó yfir til mömmu. Maður er nú ekki nema einhverjar 5 mínútur á leiðinni, ef það nær þá því. Helvíti fínt.
Ég verð víst að fara að biðja Makann um að sjá um þrifin heima, því ég er strax komin með grindargliðnun eða grindarlos eða hvað sem þið viljið kalla þetta.. Það sökkar. Ekki komin lengra en þetta, og ætla strax að verða eins og aumingi. En svona er þetta bara. Sumar vita ekkert æðislegra og eru aldrei eins hraustar og þegar þær eru ófrískar, en svo eru svona ræflar eins og ég, sem eru varla stignar framúr eftir getnað, þá eru þær orðnar slappar.
Oh, dóninn ég....
Jæja, man bara ekkert meira sem mig vantar að tuða yfir í bili. Ég kem þá bara aftur á eftir.... Eða eitthvað. ;)
Bless.

1 Comments:
At 12:21 f.h.,
Nafnlaus said…
hahaha já þú ert sko dóni þarna dóninn þinn (tíhíhí)
;) ...ömurlegt samt að verða svona:/
Skrifa ummæli
<< Home