Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

23 september 2005

Sælt veri fólkið

Jamm, vinna eina ferðina enn.
Er ekki alveg komin með netið sjálf ennþá, en var að panta svona Hive tengingu áðan.
Úff, hvað ég er spennt... Þá getur mín bara bloggað oft á dag!
Skyndilega verð ég farin að deila með ykkur hvað ég fékk mér í kvöldmat og hádegismat og hvað ég er orðin þung og hvenær ég fór að kúka síðast og...... Nei, djók.

Annars var ofsa mikil sorg heima í gær, sem breyttist á einu augnabliki í alveg svakalega gleði.
Albert, elsku besti kisinn okkar, lét ekkert sjá sig í ca einn og hálfan sólarhring. Mjög ólíkt honum. Ég var búin að liggja yfir kattholt.is og hringja þangað, ásamt dýraspítalann í Víðidal og dýralækninn hans til að fá merkinguna hans ef ég skyldi ætla að auglýsa eftir honum. Ekkert hafði bólað á honum neins staðar, og við vorum farin að ímynda okkur að eitthvað fíflið hefði keyrt á hann og dömpað honum ofan í skurð eða eitthvað álíka smekklegt. Úff, hvað ég var orðin sorgmædd.
En viti menn; Makinn skrapp útí snöggan bíltúr í gærkvöldi, meðal annars til að svipast um eftir honum í hverfinu, og síðan heyri ég bara þegar hann kemur heim að einn lítill og loðinn hendist með honum inn og byrjar á að steypa matarskálinni sinni um koll! Vá, hvað hann var svangur, og ískaldur og hryllilega kvekktur eitthvað, greyið. Það var engu líkara en að hann hefði verið úti síðan einhvern tímann í hádeginu daginn áður því hann var svo kaldur og aumingjalegur að það hálfa væri nóg. Ég var fljót að opna eitt svona Whiskas bréf handa honum yfir þurrmatinn og hella mjólk í skál, og þetta hvarf allt á svona 3 sekúndum.
Þá var ein lítil, ólétt dama voða, voða glöð.

Þarf að bjarga lyfjamálum....

2 Comments:

  • At 1:56 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    vá ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég myndi lenda í því að týna kisanum mínum;(
    en gott að hann skilaði sér heil heim;) samgleðst:)

     
  • At 9:08 f.h., Blogger Birta said…

    Já vá, ég fékk alveg illt í magann :/
    Snillingar þessar kisur :)

     

Skrifa ummæli

<< Home