Hva, Maja bara að fá kúlu?
Jamm, that´s right. Maja litla fer að stækka og þyngjast innan skamms. ;) Er komin einhverjar 10 vikur á leið, og líður bara svona eftir atvikum.
Ógleðin er að mestu farin, en nú fer hormónaruglið að kikka inn í staðinn. Það má varla segja orð við mig án þess að ég verði alveg ofsalega fúl eða fari bara að hágráta. Glötuð pía... En það er víst eðlilegur hluti af þessu öllu saman.
Og ég er ennþá að vinna með gamla fólkinu. Tími minn hér fer að vísu að verða liðinn, en ég verð hérna áfram aðra hvora helgi, svona á meðan þyngdarlögmálið leyfir. Ég þyrfti samt víst að vera í 100 % vinnu í 4 mánuði í viðbót til að fá rétt á fæðingarorlofi. Verð að öllum líkindum að skella mér í þrif eða eitthvað, ef ég get.
Annars var mér svolítið brugðið þegar ég fór með litla drenginn og mömmu í Kringluna í dag. Við ákváðum að fara í Símabúðina til að finna handa mér nýjan síma á svona kreditdeal einhverjum. Anyway, Sá stutti rak augun í vatnspóst inni í Símanum og fór að tala um að hann væri þyrstur. Ég fer með hann að vatnspóstinum... Tómur.
Þannig að við rænum bara einu af þessum ódýru og fínu plastglösum og förum í leiðangur til að finna kalt vatn handa barninu að drekka.Fyrsti áfangastaður var salernið þarna á annarri hæðinni, þar sem tíkallasímarnir eru (eða voru allavega alltaf). Þegar þangað inn er komið, kemur í ljós að það er ekki hægt að láta renna kalt vatn úr krönunum þar, því þeir eru stilltir á svona lukewarm. Allir.
Jæja, það náði þá bara ekkert lengra. Áfram höldum við að rölta, ég á háum hælum og hann dauðþreyttur á þessu panikki. Röltum um alla Kringluna í von um að finna einhvern blessaðan vatnspóst, en ekki einn einasti var sjáanlegur. Var að pæla í að spyrja inni á einhverjum af þessum æðislega hipp kaffihúsum hvort þeir vildu sjá af vatnssopa handa þyrstu barni, en var eiginlega fyrirfram búin að ákveða að mér yrði hent öfugri út eins og hverri annarri nísku mömmu sem tímir ekki að kaupa Svala handa krakkanum sínum. Eftir mikið labb og mikið af kveinstöfum frá litlum manni, fundum við loksins annað salerni. Og þá var bara að sjá; eru líka svona viðbjóðslega nýtískulegir og flottir kranar sem bjóða ekki upp á neitt nema volgt vatn, eða getum maður loksins farið að svala þorsta sínum? Því ég var sjálf orðin dauðþyrst á öllum þessum hlaupum um allt.Og viti menn; Þar var kalt vatn í boði! Og það sem var þambað,maður minn! Allavega 2 glös drukkin í einum teyg hér um bil.
Og nú vil ég bara skora á þá sem hafa með þetta að gera, að koma upp vatnspóstum á göngugöturnar í Kringlunni og þessum stöðum. Því hvað er vitið í að eiga besta og ódýrasta vatn í heimi, ef maður fær svo hvergi að njóta þess?

4 Comments:
At 1:03 e.h.,
Nafnlaus said…
Neih :) til hamingju með litla bumbubúann :)
At 5:03 e.h.,
bite me! said…
sko stelpuna!!! já til hamingju með grjónið:D annað Basmati á leiðinni:)
At 8:13 e.h.,
Birta said…
Hahaha! Já þau klístrast ekki saman.
At 8:39 e.h.,
Maja said…
Aargh! Hver er anonymous??
Well, skiptir sjálfsagt engu...
Takk fyrir mig. ;)
Skrifa ummæli
<< Home