Voðalegt vesen er þetta...
Ég er búin að vera að basla við að stækka myndina í prófælnum mínum, en ekkert gerist. Svo loksins þegar eitthvað var að virka, þá þóttust þeir hafa "encountered a problem" með explorerinn, þannig að allt datt út...!
Ótrúlega týpískt.
Jæja, ég verð þá bara að vera lítil og lúsaleg þarna uppí horni.
Var að koma úr smá bíltúr með Makanum. Alltaf gott að komast aðeins út á kvöldin þegar Sá Stutti er sofnaður. Ákváðum nú að byrja á súkkulaðisjeik, svona í tilefni þess að Álfheimaís er til...! Enduðum svo bara í Heiðmörkinni og eitthvað lengra, hef enga hugmynd um hvar við vorum. Hef aldrei keyrt þarna áður. En það er ágætt, alltaf gaman að sjá eitthvað nýtt. ;)
Annars vorum við hérna útá plani hjá mömmu í dag, hann með bónbrúsann og ég með tusku og glerúða á lofti. Það veitti nú ekkert að þurrka aðeins af litla kvikindinu (þ.e.a.s. bílnum) eftir allan þennan akstur sem við höfum lagt á hann, greyið. Held líka að hann hafi verið ansi sáttur, urraði alveg í gang þegar Makinn startaði honum. ;)
Svo er það bara jarðarför á morgun. Kistulagningin var í gær, þannig að það allra viðkvæmasta er búið. Ég var kannski ekkert búin að tala um það hér að hann afi minn dó bara sama morgun og við sigldum í höfn á Seyðisfirði. Elsku kallinn, hann var nú orðinn svo lasinn að þetta var í rauninni það sem allir voru að bíða eftir.
En auðvitað er þetta alltaf jafn erfitt og leiðinlegt, þrátt fyrir það. Að ég tali nú ekki um þegar það fara að hrúgast á mann minningarnar síðan við stóðum í þessu með pabba og frænku. Það var nú svo átakanlegt allt saman, að ég hef varla enn jafnað mig á því, þótt það séu að verða 3 ár síðan.
Annars var mamma nú að segja mér ansi skemmtilega sögu af afa sem ég er að pæla í að deila með ykkur, svona í minningu hans:
Þegar hann bjó í Búðardal sem ungur maður, þá var það eitt sinn að sýslumaður gerði kröfu til hans um einhverja skattaskuld. Afi var nú ekki alveg á því að fara að borga einhvern helv... skatt svona einn tveir og þrír. Þannig að það sem hann gerði var, að hann safnaði saman 5-eyringum og 10-eyringum í svona gamla hveitipoka. Hélt tölu á þeim öllum, og svo eftir heil 3 ár var hann búinn að safna sér fyrir þessari blessuðu skuld. Rölti með einhverja 2-3 hveitipoka til sýslumannsins, fulla af "eyringum", skellti þeim á borðið, og sagði honum að þarna væru peningarnir hans komnir....! Pælið í þessu, þarna voru auðvitað engar svona fínar talningavélar eins og er í bönkum í dag og ekki neitt! Þannig að sýslumannsgarmurinn hefur þurft að telja þetta allt saman til að ganga úr skugga um að þarna væru nú örugglega allir aurarnir (í orðsins fyllstu..), til að geta síðan fært það inn í bókhaldið sitt..!
Maður ætti nú að prófa þetta; safna bara krónum og láta þær hrannast upp þangað til maður ætti fyrir þessum bölvuðu opinberu gjöldum sem þeir draga af mér barnabæturnar fyrir..! Haha, eða dósum! Fara með nokkra illa lyktandi, svarta ruslapoka fulla af dósum! Hvað ætli yrði sagt, maður?
Nú fer ég að vinna í næstu viku, og það er sko ekkert lítið sem ég er spennt..! Nú halda örugglega allir að ég sé eitthvað rugluð, hlakka til að fara að vinna, hvað meinar gellan? En hey, eg hef ekkert unnið í ca 3 og 1/2 ár, fyrir utan einhverja afleysingu í fyrrasumar, þannig að ég má sko alveg láta mér hlakka til! Svo verð ég líka á alveg ágætis launum, þannig að það verður líka góð tilfinning að geta grafið niður eitthvað af þessum skuldum.
Fara svo bara til Sverige þegar það er búið, maður! Aaaahh, það verður fínt.
But well, mér er orðið illt í bakinu af að reyna að halda mér uppréttri í hálf-brotnum stól, þannig að ég ætla að sjá hvort hún mútta sé að horfa á eitthvað spennandi í imbanum.
Adios!

1 Comments:
At 1:09 f.h.,
Nafnlaus said…
Bíddu nú við... hvað er að gerast.. ertu bara alveg flutt á klakann loksins ;) hvar ertu svo að fara að vinna???
Skrifa ummæli
<< Home