Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

01 júlí 2005

Ísland, fagra Ísland...

Jæja, komin aftur.
Bullandi sjóriða, slappleiki, þreyta eftir 1700 km akstur og ég veit ekki hvað og hvað.
En það er auðvitað fínt að vera komin. Þó ég hafi nú sleppt nokkrum tárum lausum síðustu nóttina í Bergen, þá er alltaf gaman að hitta fólkið sitt og drekka vatn sem hefur ekkert eftirbragð..!

Einhverra hluta vegna er letrið á síðunni minni alveg afskaplega smátt.. Ég var nú eitthvað að reyna að redda þessu fyrir löngu síðan en það gekk ekkert. Ógisslega mikil minnimáttarkennd eitthvað, geðveikt litlir stafir...

Anyway, var að tala við einhverja afbragðs indæla manneskju af leikskólanum hjá þeim stutta, og hann fær að byrja 22. ágúst. Að vísu alveg fáránlega seint, miðað við að fyrsta vikan er bara aðlögun, þannig að ég get í rauninni ekki farið í neina fasta vinnu fyrr en þá mánaðarmótin ágúst/september.
En hey, ég hlýt að finna mér eitthvað að gera þangað til.

Þau Rós og Skúli fóru í Duran Duran í gær...! Vááááá, hvað ég hefði viljað fara, maður! Rós sagði að það hefði verið geggjuð stemmning, öll allra bestu lögin tekin (nema New Moon on Monday, hélt hún..), fólk borið út vegna þrengsla og ég veit ekki hvað og hvað. Ofsa rokk. ;)

Svo var hann afi minn að deyja í gær. :( God rest his soul. Hann var að vísu orðinn alveg svakalega mikið veikur, með alzheimer á mjög háu stigi. Núna er ég bara fegin að ég fór og kvaddi hann áður en við fórum út í apríl.
Þannig að í næstu viku verður eitthvað af jarðarförum hjá mér.

Nú ætla ég að hætta að hugsa svona mikið yfir lyklaborðinu, bíð bara eftir að einhver komi að rugla í mér á msn-inu. ;)

Góða nótt og gleðilega páska...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home