Úff..

Ekki veit ég hvað ég er að gera fyrir framan tölvuna núna. Held samt að ætlunin hafi verið að uppfæra þessa blessuðu síðu mína eitthvað.
Ég er semsé byrjuð að vinna. *jibbí* Fín tilbreyting bæði fyrir mig og makann, því nú er hann alfarið með Þann Stutta á daginn á meðan ég er að vinna. Þeir hafa alveg agalega gott af því, báðir tveir. Eða allavega sé ég ekki betur. OK, ég er að vísu pínu hrædd um að Sá Stutti verði að algjörum pabbastrák og vilji minna með mig hafa. After all, ég hef nú verið alfarið með hann síðan hann fæddist, fyrir utan einhverjar 6 vikur í fyrra þegar ég var í afleysingunum. En svona er þetta bara. Og svona mun þetta verða í vetur. Hann á leikskóla til 4 eða hvað það verður, heim að borða, og svo í háttinn kannski 1 1/2 tíma seinna. Þetta er auðvitað ótrúlega leiðinlegt, enda skilur maður svolítið konur sem vilja bara vera heimavinnandi. Ég hefði sko ekkert á móti því, ef maður hefði bara efni á því! En það verður nú ekkert á næstunni, hugsa ég.
Þetta hefur líka fengið mig til að langa enn meira til að hafa bara einhvern lítinn, sætan bisness heima. Vera bara með kaffihús á neðri hæðinni á einhverju húsi útí sveit eða eitthvað. Ég held að það séu liðin 6 ár síðan ég fór fyrst að hugsa um þetta kaffihúsadæmi, svo er það að koma aftur núna. Fara bara á svona rekstrarkúrs, smurbrauðs- og matreiðslunámskeið. Mér finnst það alveg skelfilega freistandi. Og ekki myndi það skemma fyrir ef maður myndi læra eins og eitt tungumál í viðbót eða svo. Þá væri maður með íslensku, ensku, dönsku, sænsku og svo kannski spænsku eða eitthvað.... *dreym*
Sirrý frænka mín hringdi einmitt hingað í kvöld og var að spyrja um mömmu. Hún er núna á bróderingarnámskeiði, þar sem hún er að læra þessa gamaldags handavinnu sem mamma hefur verið með. Þessi frænka mín er sko aaalltaf að læra eitthvað; búin að fara á milljón matreiðslunámskeið, hún var að læra í Frakklandi, þau hjónin man ég að fóru einu sinni að læra dans... Alltaf að bæta einhverju í forðann. Svona myndi ég vilja hafa þetta. Í staðinn fyrir að sitja á rassgatinu á sama stólnum í einhverjum skóla í 4 ár og síðan önnur 4 eða fleiri í öðrum skóla... I don´t think so. Það er sko ekkert fyrir mig.
Núna get ég bara ekki beðið eftir að við hjónin erum bæði komin í alveg pikkfasta vinnu, borga allt og ganga frá öllu sem þarf, svo við getum hypjað okkur út þar sem er actually HÆGT að gera það sem manni langar, án þess að vera algjörlega upp á aðra komin eða á hausnum. Svona eins og þetta hefur verið basically síðan ég varð ófrísk. Nú nenni ég ekki meira af því.
Jæja, eigum við að finna eitthvað aðeins skemmtilegra til að tala um? Óþarfi að draga alla niður á þessu annars indæla miðvikudagskvöldi. ;)
.....Já... Bara að koma helgarfrí osona? Það er nú ekki búið að setja á mig nema eina helgi í eldhúsinu, og það er um verslunarmannahelgina. Það er fínt, maður, fæ mánudaginn borgaðan eins og sunnudag. ;) Ekki veitir af að maður reyni að taka inn eins og maður getur, þá verður kannski feit og pattaraleg fyrsta útborgunin mín.
Æi, nú nenni ég ekki meir. Fer alveg að fá stífkrampa í fingurnar af þessu pikki. Er þetta ekki bara orðið nokkuð gott?


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home