Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

03 júlí 2005

Bjartar nætur...

Jæja, klukkan er orðin 2 og ég er enn vakandi. Makinn var að skríða útúr dyrunum, því miður.
Maður áttar sig hreinlega ekkert á hvað klukkan er, því það er svo hryllilega bjart bara hér um bil alla nóttina. Svo skildi ég ekkert í því að mig var farið að svíða í augun af þreytu, leit á klukkuna og þá var hún bara orðin kortér í 2, takk fyrir.
Ofsa fúlt að Makinn hafi þurft að fara, en þetta verður víst svona í einhvern tíma.

En hey, ég fékk bíltúrinn minn í dag. ;) Og ég held að við höfum í fyrsta skipti síðan Sá Stutti fæddist setið í bílnum og borðað ís, 3 saman. Það hefur einhvern veginn aldrei verið tími í svoleiðis lagað áður.

Svo var bara komið til múttu í mat, Mið Bróðir lét líka sjá sig. Live 8 tónleikarnir voru að sjálfsögðu á í allan dag, jafnvel skipt um erlendu stöðvarnar til að sjá hvað hinir væru að sýna. ;)
En þetta var ekkert smá flott. Pink Floyd stóðu definetely uppúr, ásamt Paul McCartney, Sting, The Who og... Tatamm.. Velvet Revolver. ;) Hefði nú alveg mátt vera soldið meira af svona fínum rokkböndum... Æi, hvað er ég að rugla, það eru svo fá rokkbönd eftir. Það eru Velvet, Audioslave (og þar með Soundgarden dottnir út), Pearl Jam... og eitthvað smotterí meira sem ég man ekki í augnablikinu sökum þreytu.

*GEISP* Jæja, þetta er ekki hægt. Best að reyna að sofa eitthvað svo ég geti nú allavega gefið kútinum morgunmat í fyrramálið....

Later, dudes.

3 Comments:

  • At 9:36 e.h., Blogger Birta said…

    Sammála þér með Pink Floyd. Shii.. ég hef aldrei verið mikill aðdáandi en vá. Ég sat í sófanum og óskaði þess að tónleikarnir myndu aldrei enda :)

     
  • At 10:31 f.h., Blogger Maja said…

    Yep, magnaðir! :)

     
  • At 3:08 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Þetta er nú meiri lesningin,vona að ég sé a misskilja eitthvað af þessu.

     

Skrifa ummæli

<< Home