Well, við búum enn hjá tengdó, því miður. Þetta fer nú að verða ágætt svona...
Heyrðum aðeins frá tengdapabba um daginn, hann hafði fengið símtal frá bænum sem er að finna íbúð fyrir okkur, þar sem honum var tjáð að það væri að losna 6 herbergja íbúð, sem við gætum fengið. Leigan? 4100 kr. sænskar á mánuði, eða um 40.000 kall! Jæks! Kallinn ætlaði að fara að hringja í okkur og segja okkur að drullast til að pakka niður og drífa okkur út, en þá var hringt í hann aftur frá þessari skrifstofu... Þeir voru bara að bulla. Þessi íbúð var ekkert að losna.
Say no more.
En við höldum í vonina. Ég er þvílíkt farin að innrétta í huganum eldhús, bað og tvö herbergi... Jafnvel fleiri.
Þetta er ferlegt. Ömurlegast finnst mér að vera ekki á eigin heimili yfir jólin og fá að skreyta soldið. :(
Jólin já... Mamma greyið er að vinna á aðfangadag, jóladag og annan í jólum frá 9-23.
Þannig að við systkinin munum örugglega bara halda uppá jólin heima hjá henni, ekki í fyrsta skipti. Síðast var það 2001, þegar ég var nýorðin ófrísk, og fannst allir vera ofsa leiðinlegir við mig...
Hjúin á heimilinu eru að horfa á Idolið á meðan ég geri þau brjáluð með pikkinu í mér...
Ég reyni að pikka eins laust og ég get, þannig að kannski er þetta soldið óskýrt hjá mér. *HAHA*
Jæja, aftur á barnalandið... Until next.