Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

18 október 2004

Shit, var að finna soldið fyndna síðu, shakeskin.com.
Varð bara að bæta þessu inn. ;)

Allavega, ég ætla að fara að tékka á manninum mínum svo ég geti farið að mönsja á pítum.

Góða nótt.
Já, ég hef verið að velta einu fyrir mér...
Fólk er alltaf voða mikið að stressa sig á því hvort það sé ekki örugglega að borða rétt, hvort það sé ekki nógu hreint á heimilinu, hvort það sé að fá næga hreyfingu o.s.frv.

Ég hef fundið alveg nákvæmlega hvað hentar fyrir mig.

Ef það koma dagar þar sem ég er með algjört urge til að éta grænt og fisk, þá ét ég grænt og fisk.
Ef það koma dagar þar sem mig langar bara í steiktan kjúkling og 1944, þá ét ég bara það.

Ef mér finnst ég þurfa að stökkva út í labbitúr og fá smá súrefni í blóðið, þá stekk ég útí labbitúr.
En ef mig langar hinsvegar bara að hanga inni og glápa á video með syni mínum, þá geri ég það.

Og ef ég finn skyndilega að ég verði að vera á hreyfingu innandyra; vaska upp, ryksuga, skúra, ganga frá fatahrúgum, þá lýk ég því af á kortéri til hálftíma.
En ef ég er ekki í neinu stuði til að spá í draslinu í kringum mig, þá sleppi ég því.

Með þessu móti þarf ég ekki alltaf að vera á tauginni yfir mataræðinu eða öðru, þetta kemur allt af sjálfu sér.
Það kemur oft fyrir að ég fæ vatn í munninn af að hugsa um soðnar gulrætur eða fisk með kartöflum. Þá fer ekkert á milli mála að kerfinu vantar eitthvað af efnunum úr þessum mat.

Núna er ég til dæmis með algjört æði fyrir pítum með sem allra mestu grænmeti (ekki buffi).

Það kemur ansi oft fyrir að ég vakna með pjakkinum mínum á morgnana, og við varla búin að ljúka við að smjatta á morgunmatnum þegar ég er komin með hann í gallann og út í göngutúr í Breiðholtinu. Ég nenni ekki að pína mig ef ég er að drepast úr leti, enda held ég að það sé ekkert hollt.

Mér finnst þetta vera ágætis lífsmottó; Just do whatever YOU feel like doing at this moment.
Skrokkurinn lætur mann alltaf vita hvað á að koma næst. ;)

Have a nice life.