Vindlareykur og fótbolti...
Það er basicly það sem er í boði hjá mér á kvöldin. Á meðan ég sit við tölvuna, þá situr "húsbóndinn" á heimilinu fyrir framan sjónvarpið, með illa lyktandi vindil, og horfir á allt það leiðinlegasta sem hægt er að finna í sjónvarpinu.
Og ef hús...frúin fer að tala í símann, þá er hann yfirleitt ekkert að hafa fyrir því að hafa fyrir því að lækka á meðan. Algjör.
Og það besta er... hann er örugglega sá eini sem ég veit um sem horfir á boltann á Sýn, ruglaðan og bara með svona skrjáfhljóði.. Forfallinn.
Við mæðginin og mæðgurnar, þ.e. ég og Maggi litli og mamma, fórum að hundapíast í dag, þegar við fórum að passa sææææææææææætasta hvolp sem ég hef á ævi minni séð!
Hún heitir Dollý, og er 8 vikna American Cocker Spaniel. Algjört rassgat, hún veit sko ekkert, hún er svo vitlaus! Systir mín var að fá hana á sunnudaginn, alveg frelsuð.
Mér finnst samt soldið skrýtið að hún hafi verið afhent svona lítil, manni finnst hún alveg hafa átt 1/2 til 1 mánuð eftir hjá mömmunni... Oh well, þær hljóta að vita þetta sem eru að rækta. ;)
Og það styttist í að við flytjum..!! Aaargh, ég hlakka svo til! First time ever, þá hlakka ég til að fara að vera ein heima á kvöldin. Ég veit að það verður bara gaman í smátíma, en ég ætla líka að njóta þess í botn. Fara í bað með opna hurð, stríplast um íbúðina, horfa á ALLT sem MIG langar að sjá, panta pizzu á miðnætti, fá mér bjór með herranum á föstudögum....
Oooooh, þetta verður geggjað.
Ég er búin að sækja um leikskóla fyrir litla skrímslið í Hfj. Að vísu bara á netinu, en ætli ég hringi ekki og ítreki strax á morgun. Svo ætti nú ekki að vera neitt voða mikið mál að finna vinnu þarna í kring, fínt að hafa það sem nálægast til að spara bensín og svona. ;)
Svo er eitt sem er að gera mig geðveika... Ég fékk bréf í gær frá Fjársýslu Ríkisins, en það eru víst þeir sem borga út barnabætur. Og guess what. Ég vissi reyndar að ég fengi ekkert, af því ég skulda einhver þjónustugjöld og bleh... En vitið þið bara hvað ég hefði fengið?
Heilar 5.136 krónur....Íslenskar!!
Semsé, ég á rétt á ca. 20.000 krónum á ári, sem er minna en flestar eru að fá á 3ja mánaða fresti. Pælið í þessu, bara af því mig langaði til að gifta mig, og af því að ég hef verið atvinnulaus í 3 ár (sökum meðgöngu og barneigna, by the way!), að þá á ég bara ekkert að fá frá ríkishelvítinu.
Þetta finnst mér algjörlega glatað, enda ætlum við hjónin að fara að láta heyra í okkur í vikunni. Mér finnst þetta vera til skammar.
Og hana nú!

3 Comments:
At 12:23 f.h.,
Maja said…
Við erum að flytja í Hafnarfjörðinn, ekkert voða langt frá þér. ;)
At 11:15 e.h.,
Nafnlaus said…
Bíddu bíddu... eru alveg að fara yfirum, þú veist að ég er flutt í vesturbæinn?? ;) kv. Hanna (meira málið að koma með comments hérna, þarf að skrá sig inn og eitthvað :S )
At 12:18 f.h.,
Maja said…
Æjá, var búin að gleyma því...
Skrifa ummæli
<< Home