Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

16 október 2004

Jájá, meira hvað ég er dugleg að skrifa hingað inn...

Allavega, við komumst ekkert til Sverige þegar við ætluðum. Eitthvað voða vesen með íbúðina sem við vorum komin með. Æi, nenni ekki að fara útí það nánar.
Þannig að við búum ennþá hjá tengdamömmu, og fengum okkur ADSL-tengingu þangað.
Helvíti fínt.
Við erum nú svona aðeins að reyna að gera litlu herbergiskytruna okkar sem heimilislegasta, fengum okkur 20" sjónvarp og hræódýran DVD-spilara. Maður verður nú að hafa eitthvað quality í atvinnuleysinu...

Og talandi um atvinnuleysi, þá fór ég í fyrsta atvinnuviðtalið mitt í morgun.
Það var hjá SVÆÐISSKRIFSTOFU MÁLEFNA FATLAÐRA Á REYKJANESI!!!
Þetta er svo langt að mér fannst ég verða að capsa það.
Ég er nú ekkert svakalega bjartsýn á að fá vinnu hjá þeim, þar sem þau eru að leita að fólki sem getur byrjað helst í gær, eða þá eftir áramót í hálfsdagsvinnu. Týpískt.

Sá stutti er ekki enn kominn á leikskóla. Meira hvað þetta tekur langan tíma.
Þokkalega ömurlegt fyrir hann greyið, sem liggur alltaf utan í grindverkinu á leikskólanum hérna úti þegar við löbbum þar framhjá. Hann langar svo agalega að leika sér með krökkunum...

Spúsi minn er að vísu farinn að vinna eins og dauðinn eigi eitthvað inni hjá honum.
Byrjaði í gærkvöldi í þrifavinnunni sem hann var í fyrr á árinu.
Mér leist nú ekkert á það fyrst, en svo fór ég að hugsa það þannig að við værum fyrst og fremst að safna okkur pening til að hafa með okkur út í vor. Hver veit nema við getum barasta borgað inná okkar eigin íbúð... Það væri helvíti nice.

Annars hafa síðustu kvöld algjörlega farið í að glápa á Diveo (nýja orðið mitt yfir dvd.).
Meðal þeirra mynda sem við erum búin að sjá eru Monster, Mystic River, Lost in Translation,
50 First Dates... Og einhverjar fleiri. Já, Secret Window.
Allar geðveikar. Þetta er sko algjört menningarsjokk fyrir okkur að vera allt í einu að sjá svona mikið af fínum myndum, því við förum aldrei í bíó, og höfum ekki tekið video í laaangan tíma.
Bara gaman. ;)

Well, er þetta ekki ágætis skammtur í bili? Allavega búin að koma mér af stað, ég verð svo að vera duglegri við skriftirnar. Mér finnst þetta nebblega svo gaman. ;)

Until next....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home