Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

15 september 2004

Jæja, þá finnst mér vera kominn tími til að virkja þessa síðu aftur.
Fullkomlega við hæfi, þar sem við erum nú á leiðinni til Svíþjóðar í mánuðinum, þangað sem frá var horfið í síðustu skrifum...

Það eru líka svo agalega margir komnir í þennan bisness núna, þ.e. bloggið, að manni finnst maður vera að missa af einhverju..!

Við mæðginin erum stödd heima hjá múttu minni eins og er, þar sem ég fæ alla netútrás og rúmlega það. Algjörlega glaaatað að hafa ekki net sjálfur. Og það er líka algjörlega glaaatað að búa inná öðrum í meira en 2-3 daga....

Allavega, við erum barasta að bíða eftir að fá að vita með íbúð í Svíþjóð, og þá erum við stungin af aftur. Þetta er ekki hægt, að þykjast geta meikað það hér, ómenntaður og með barn. Og meira að segja þótt maður sé menntaður, þá skilst mér að það sé ekkert mikið skárra.
Bíddu nú við, ég á t.d. systur sem er !menntaður! snyrtifræðingur, og hún vinnur í mötuneyti Terra Nova Sól. Svo þekkir maðurinn minn einn sem er !menntaður! guðfræðingur, og hann er að vinna með vandræðakrökkum hjá ÍTR. Eða var það síðast þegar ég vissi.

Þrátt fyrir það, þá ætla ég nú að fara að !mennta! mig úti, eftir kannski 1 og 1/2 ár eða svo, þegar ég fer að glugga í sjukraliðanámið. Það ku nefnilega vera mátulegt nám fyrir týpur eins og mig, sem kann ekkert annað en að vinna á elliheimilum.

Skyldi lasagnað mitt vera farið að brenna? Ég ætla að tékka á því....

Bæ í bili.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home