Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

18 nóvember 2003

Úff, maður fær bara sjokk!
Ákvað að tékka svona í gamni hvað það myndi kosta að læra svona naglasnyrtingu.... Setti inn fyrirspurn undir "Þitt Útlit" á Femin , og fékk svar frá einni.... Hún tékkaði víst einhvern tímann á verðunum hjá öllum skólunum sem sjá um þessi "lífsnauðsynlegu mál", og viti menn; ódýrasta námskeiðið, sem er í einhverjar 8 vikur + starfsnám og græjur, kostar ekki nema 120.000! Er þetta vit?? Svo á maður örugglega eftir að kaupa einhver accerories líka, þannig að þetta þykir mér ansi dýrkeypt spaug...

En nóg um það.
Við hjónin lágum grenjandi yfir sjónvarpinu áðan..... ! FAB 5! Þetta eru sko uppáhaldsþættirnir mínir í öllum heiminum! Targetið þeirra var semsé gaur sem var að bjóða foreldrum sínum + foreldrum kærustunnar heim til sín, allir að hittast í fyrsta skipti og voða gaman. Samt skrýtið, þau eru búin að deita í 2 ár, og hafa aldrei hitt foreldra hvors annars...? hmmm... Well, anyway, þeir (Fab 5) gerðu íbúðina ýkt flotta og klæddu gaurinn upp og allt þetta venjulega, og eini homminn sem maður virkilega efast um að sé hommi hélt actually að það væri góð hugmynd að gæinn byði uppá drykki....... Oh, how wrong he was.... Gæinn hafði greinilega aldrei drukkið neitt annað en Bud á allri sinni mislukkuðu ævi, og það sem kom útúr drykkjablönduninni hans var hreinast sagt meistaraverk! Ææææ, ég eiginlega nenni ekki að lýsa því, þið verðið bara að sjá þetta fyrir ykkur....
Mér skilst að þessir þættir séu sýndir á Skjá Einum, þið getið tékkað á því hér . And if they are, þá mæli ég pottþétt með þeim!

Hvernig er annars Skjár 1 og Skjár 2 systemið að virka? Ég frétti einhvers staðar að flestir bestu þættirnir væru komnir á nýju stöðina, semsé þá sem þarf að borga fyrir... Er það ekki bara týpískt?
"Víííí, við skulum gera Íslendingum ýktan greiða! Opnum sjónvarpssöð sem sýnir geeeeeðveikt mikið af skemmtilegum þáttum! Alveg ókeypis!! Og þegar þeir eru orðnir algjörlega hooked, þá opnum við aðra stöð! Jahá, það verður sko skemmtilegt! Nú þurfa aumingja fíflin sem finna ekkert ljós í tilverunni nema að horfa á Will & Grace og Everybody Loves Raymond, að BORGA okkur fyrir að fylgjast með þeim! Gamla stöðin? Jájá, höfum bara Innlit/Útlit og Mótorsportið þar! Okkur er alveg sama, þetta er svo GAMAN!!!"
Oh, hvað ég hata Íslendinga sem ætla að meika það á litla fólkinu....
En, svona er þetta víst. Og því miður ekkert við því að gera.

Nú er ekki nema vika í okkur mæðginin. Gaman gaman! Mútta fór víst í dag og fékk lyklana að íbúðinni sem við flytjum í, og skoðaði sig aðeins um. "Hun er nú voða lítil, en voða snyrtileg og allt hreint og fínt.." Ekta mamma. Passar uppá að bakaraofninn sé örugglega hreinn og svona. Híhí, mömmur rúla.

Oh well, var búin að lofa sjálfri mér að fara snemma að sofa í kvöld.... Búin að svíkja það loforð nú þegar reyndar, en óþarfi að gera hlutina verri. So, ég segi bara *Góða Nótt*