Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

15 nóvember 2003

Kvöldið hér.
Laugardagskvöld, ósköp lítið annað gera en að rembast við að skrifa eitthvað spennandi í bloggið mitt.
Hef verið alveg skelfilega löt við það undanfarið, aðallega samt vegna þess að það hefur lítið verið að skrifa um, svoleiðis.

Nú eru ekki nema einhverjir 10 dagar í að ég birtist á klakanum, og ég verð að segja að ég orðin alveg sjúklega spennt! Mútta ætlar víst eitthvað að forvitnast með íbúðina, setja upp gardínur og eitthvað fleira svona mömmulegt. Mamma rúlar. Þá á maður bara eftir að kaupa sér rúm og bíl, og þá verðum við fín. Spennandi að sjá hvernig þetta fer allt saman.

Merkilegt nokk, þá hefur sjónvarpið hér verið yfirfullt af þáttum þar sem Ísland kemur eitthvað við sögu, ekki var það nú til að bæta á spenninginn. Mjög funky, rosalega mikið bleik fígúra sem kallar sig Grynet var víst í heimsókn á Íslandi að tékka á hestum, og að sjálfsögðu birtist "uppáhalds"pöbbinn okkar, 22, þar á mynd. Svo var þáttur um Surtsey í dag, hina einu sönnu náttúruperlu og allt það. Allavega, það líður varla sá dagur að ekki sé eitthvað minnst á þetta yndislega land á einhvern hátt. Það er gaman, og maður verður svona pínu montinn.

En, það verður samt pínu súrt að yfirgefa Svíþjóð. Hérna er nebblega alveg sjúklega auðvelt að lifa eins og kóngur... eða OK, eins og sæmilega stæð manneskja, þótt maður sé ekki með neina fúlgu á milli handanna. Sem er mjög gott, eins og Ísleifur í Mótorsport myndi segja.

Í kvöld var live útsending frá Eurovision Junior, sem var bara krúttlegt! Þarna voru semsé krakkar að syngja lög sem þau höfðu samið sjálf (!), og þau voru alveg óhugnanlega dugleg! Ótrúlega gaman að sjá þetta.

Litli kallinn minn er alveg að fara að nenna að labba, loksins. Hann kann þetta alveg sko, en finnst þetta bara óþarfa tímasóun, þar sem hann er farinn að geta skriðið á u.þ.b. 20 kmh á klst... Hann er fær. Kann orðið að segja alveg helling, svona sniðuga hluti eins og "túda" (kúka) og "dettttaaaa", sem er voða gaman að segja þegar hann er að príla einhvers staðar.
Frekar fyndið.

Well, anyways, kaffið sem ég drakk fyrr í kvöld er alveg að renna af mér, er á meðan er...
Vorum alveg að leka niður strax um 6-leytið í kvöld og ákváðum því að skella okkur á smá kaffi. PLING! Skyndilega var Maja farin að dansa og láta eins og fífl útum alla íbúð, og ekki lagaðist það þegar það var kominn smá Mellanöl í kerfið.. Come on, eitthvað verður maður að finna sér að gera hérna! ;)

En svona er þetta. Ætla að kveðja í bili, en ef einhver er með hugmynd að vinnu handa mér, svona eftir hádegi, þá má alveg láta heyra í sér.

Until next time, Sayonara!