Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

03 nóvember 2003

Jæja, alltaf jafn kósý að klippa á sér neglurnar fyrir framan tölvuna. Neibb, alveg rétt hjá ykkur, ég á ekkert líf...
Hér í Svíþjóð eru sýndir ansi sniðugir þættir sem heita High Chaparall. Tveir sænskir gaurar, 25-ish, voru í Hollywood í sumar og söfnuðu innliti og viðtölum hjá ýmsum "stjörnum". Fyrsta subjectið var Dennis Rodman. Meira fíflið. Hann og konan hans lentu í rifrildi í þættinum um allar gellurnar sem hann er að meika það með í sínum villtu partýum. Hún fær engu að ráða.
Næstur var Fabio..! Yep, sjarmörinn sjálfur bauð þeim heim til sín og í smá rúnt á krossurunum sínum. Ótrúlega nice gaur, actually.
Í þriðja þættinum fengu þeir Pamelu Anderson til sín, og hún var, eins og venjulega, ljóskan uppmáluð. Þeir spurðu hana allskonar kjánalegra spurninga, létu hana lesa "a bedtime story" fyrir sig, og fóru í feluleik... Og þá stakk hún af. Geðveikt léleg.
Ron Jeremy sjálfur birtist svo í 4. þættinum, og tók þá meðal annars til Bunny Ranch, þar sem slóganið er... æi, ég man það ekki. Allavega er það svona eskort-hóru service, sem öllum gellunum fannst alveg æðislegt að vera bendlaðar við. God bless these children.
Og í þættinum í kvöld eyddu þeir 2 dögum með.. Tatatatamm! Ian Ziering! Þið sem kannist ekki við nafnið, þá er það gaurinn sem lék bílaóða nördinn Steve í Beverly Hills 91290. Ég bjóst við einhverju ofsa freakshow, en svo er þetta bara virkilega nice bloke! Bauð þeim heim til sín í Beverly Hills (en ekki hvar...), þar sem hann býr í alveg mátulega stórri villu með hundinum sínum og kærustu. Þeir piltarnir drógu fram öll hrekkjutólin sem fást í Hókus Pókus á Laugaveginum; prumpublöðru, tyggjó með svona mini-músagildru, hring sem sprautar vatni og allt þar fram eftir götunum. Það fannst Steve alveg afskaplega skemmtilegt. Hann er víst að leika í einhverri mynd sem heitir Stripped Down (úúú..), og þeir fengu að fylgja honum á tökustað. By the way, það er actually verið að sýna gömlu Beverly Hills þættina hér..! Merkilegt hvað Svíar grafa upp af fáránlegu sjónvarpsefni. Einnig eru sýndir þættir sem Will sjálfur Smith lék í þegar hann var unglingur og enn þekktur sem The Fresh Prince (þættirnir heita Fresh Prince in Bel Air..); mjög korný gamanþættir með Patrick Duffy (Bobby úr Dallas) og Suzanne Somers; plús ein sú skelfilegasta hugmynd að gamanseríu sem nokkurn tímann hefur litið dagsins ljós. Og hver skyldi vera í aðalhlutverki í þeirri snilld? Bob Saget úr America´s Funniest Home Videos! Glataður? Já!
Annars eru það bara rólegheitin sem ráða ríkjum hér, eins og venjulega. Smá sorgar-atvik í dag reyndar; við vorum að selja bílinn okkar. :( Ég á eftir að grenja mig í svefn næstu 3 nætur. Þessi bíll hefur farið með okkur til fjögurra landa, án þess svo mikið sem verða the slightest fúll útí okkur! Aumingja litla, rauða Mazdan okkar. En stefnan er að fá sér eitt stykki L-300 þegar við komum til Íslands. Það er bara kúl. Allir vegir færir.
Litli kúturinn er að verða meiri og meiri rokkari með hverjum deginum sem líður. Nú orðið er hann ekki í rónni nema að það sé eitthvað rokk í gangi í græjunum. Gítar og trommur, það er málið. Stone Temple Pilots, Black Sabbath, Alice in Chains, he loves it! Vill miklu frekar hlusta á rokk en að horfa á sjónvarpið. Það er bara enn meira kúl.
En jæja, best að skella sér í háttinn svo ég geti vaknað með litla slammaranum mínum í fyrramálið. *Góða Nótt*