Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

08 nóvember 2003

Vá, hvað það er lítið að gerast hjá okkuuuur! Ætli ég verði ekki orðin vitlaus áður en ég loksins, loksins kemst á klakann....! Nú er enginn bíll til að skreppa í bíltúra í, það er orðið dimmt fyrir kl. 4 á daginn þannig að eftir þann tíma er maður samasem fastur inni (mér er nebblega soldið illa við að labba með barnavagn í myrkrinu..), og meira og minna öllu búið að pakka niður. Eruð þið með einhverjar hugmyndir fyrir mig að gera?? Please, skrifið eitthvað sniðugt í gestabókina!
Neinei, þetta er nú kannski ekki alveg svona slæmt. Ég bara á það soldið til að gera það versta úr öllu, þ.e. geta ekki séð björtu hliðina á... something. Whatever.

Erum að teipa Cast Away, hefur alltaf langað soldið að sjá hana. Ég er samt eiginlega alveg hætt að geta horft á heila bíómynd án þess að sofna! Það er svona, þegar maður er á fótum allan daginn frá 8 með kannski klukkutíma pásu í hádeginu, þá verður maður soldið auðveldlega sybbinn. Ég gerði einmitt heiðarlega tilraun til að horfa á Falling Down (Michael Douglas) í gærkvöldi. Þegar aðalspennan var svona almennilega að magnast upp... ZZZzzzZZZzzz heyrist í Maju... Soldið leiðinlegt. Nota bíómyndir svona helst þegar ég er lasin og hef ekkert betra að gera en að liggja uppí sófa og stara úr mér augun yfir einhverju eins heilaselludrepandi og sjónvarpi. Og talandi um, uuupáhaldsmyndin mín í öllum heiminum til að horfa á þegar ég er lasin er Gone With The Wind. Snilldarmynd gerð árið 1939 (!), og ég kann hana svo utanað, að það skiptir í rauninni engu máli þótt ég sofni yfir henni (hún er nú ekki nema 4r tíma löng), ég veit alltaf nákvæmlega hvað er að gerast þegar ég vakna aftur! Hún, og Phantom of the Opera með Jane Seymour (pjúk pjúk, I know, en kúl mynd).

Já, MTV blabla awards... Það er orðið svo mikið af þessum awards að ég veit ekki lengur hvað er hvað! Mtv Movie Awards, Mtv Music Awards, Mtv Latin Awards, Mtv Pecker Awards... It´s all the same to me...

OK, frábært, munið þið að ég var að segja ykkur að við erum að teipa Cast Away? Eða OK, vorum!! Auglýsingarnar sem fylgja þessum bíómyndum eru svo öflugar að ég náði ekki einu sinni einni mynd á sp með sama plássi og ég hafði 2 myndir á lp... Æi, þið fattið örugglega ekkert, en what the hey, ég er pissed.

Well, nenni þessu ekki, ætla að tékka á þessum awards betur, The Darkness eiga víst að performa..! Snilld dauðans. ;)
Until next, bæjó!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home