Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

09 nóvember 2003

Jæja, ákvað að setja link á síðuna hjá litla kútinum hér við hliðina...
Ég er ein af þeim fjölmörgu (6000 manns..) sem eru með heimasíðu á barnalandinu. Svosem ekkert að því, sérstaklega þar sem við búum í útlandinu og einhverjir þarna ykkar megin að verða vitlausir á að fá ekkert að sjá hann. Ég mætti nú samt alveg vera duglegri við að taka myndir af honum til að setja inn, skemmtilegt fyrir fólk að geta fylgst með honum.

Annars er allt við það sama hér, hiti 0-5 stig, skyggni 100 metrar, millibör og allt það. Helvítis vesen að það fór að hlýna aftur, nú eru pöddurnar farnar að skríða inn um gluggana okkar enn á ný.
Kallinn fann einmitt eina myndarlega lóu undir sófanum í dag, ekki spyrja mig hvaðan hún kom. Mér þykir ekkert ægilega vænt um þessi kvikindi. Það var ein niðri í hjólageymslu í sumar sem var helvíti myndarleg; búkurinn einn og sér var eins og kóktappi, og fæturnar (eða skankarnir réttara sagt) voru álíka þykkir og standard skóreimar! Mér fannst hún ekkert sæt, þó hún hafi öruggleg ekki verið sama sinnis.
Oj, ég er komin með í magann af þessu pöddutali, sí jú leiter.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home