Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

01 nóvember 2003

Já, góða kvöldið hér!
Af hverju ekki að prófa þessa vitleysu sem virðist vera aðal-hæpið þessa dagana...
Fékk smá inspiration frá meistara Dr. Gunna, hann er fær.

Svosem ekki mikið og merkilegt sem "maður" hefur að segja frá svona til að byrja með, en einhvers staðar verður maður að byrja.

Við hjónin (alltaf jafn gaman að segja þetta..) erum á fullu að undirbúa hinu miklu flutninga á klakann í enda nóvember. Erum komin með þessa (örugglega) fíneríis íbúð í Vesturbænum, þannig að við verðum að klæða litla drenginn í svart/hvít föt eingöngu fyrstu mánuðina til að koma okkur í mjúkinn hjá hinum sí-reiðu og ofsagengnu KR-ingum í hverfinu. En hvað veit maður, kannski er félagið löngu dottið úr tísku þarna á bæ.

En þangað til við látum sjá okkur, þá er það bara mellanöl að hætti frænda okkar Svía. Eru þeir ekki annars frændur okkar? Ah, who cares. Þeir eru ágætir, það er það eina sem ég veit.
Mellanöl er nefnilega fíneríis uppfinning; 2.8 - 3.5 %, og fæst í öllum helstu verslunum. Held að afgreiðslufólkið í litlu búðinni í litla bænum sé samt farið að líta okkur ágætis hornauga þegar við erum að ná okkur í forðann. En ég meina hey, kjaftasögurnar mega ganga mín vegna, við verðum flutt héðan eftir mánuð..! Það er nú heldur ekki eins og við séum einhverjir óbilandi alkar... Ekki enn að minnsta kosti.

Já, litli bærinn okkar í Svíþjóð. Hann er lítill. Um 2000 manns, allir þekkja alla. Nema okkur að sjálfsögðu, því við erum svo miklir lónerar. *Það gerir mellanölinn* Hehehe...
En ágætt að vera hér, engu að síður. Svona "allir heilsa öllum úti á götu" fílingur. Um það bil annar hver íbúi á hund, helst tvo, og svona 3 ketti í stíl. Fínt fyrir dýravininn mig.

Well, þið fáið kannski að lesa meira um okkar sænska líf síðar, kominn tími á meiri öl.
Ciao!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home