Já, þannig fór um sjóferð þá. Er að rembast við að setja svona counter fídus á síðuna mína, ég er greinilega ekki aaalveg nógu mikill nörd ennþá...
Anyway, sjónvarpsgláp og túrverkir. Prógrammið mitt í kvöld. Þið konur sem lesið þetta, ef einhverjar; Ég mæli ekki með koparlykkjunni. Endalaus leiðindi. Er búin að vera með öll einkenni þungunar síðustu 3 daga, soldið stressuð. Var farin að sjá fyrir mér akfeita Maju, rekandi kallinn útí sjoppu eftir hamborgurum, og litli kúturinn orðinn að taugahrúgu, sökum tíðra geðsveiflna móður sinnar. Hljómar ekkert sérlega interesting. EN, ég fæ sem sé að bíða í soldinn tíma ennþá.
Krakkarnir voru ennþá að sníkja Trick or Treat í dag. Hafa sjálfsagt fengið móral yfir að hafa ekki bankað uppá hjá mér í gær, þar sem ég var tilbúin með nammi í skál og alles. Ógeðslega geðug húsmóðir á Fågelvägen 3a....
Við kíktum aðeins í bæinn í dag. Kallinn var að leita sér að bók um flughræðslu, og hvernig hægt er að sigrast á henni. Ferlegt, hann má ekki sjá flugvél í sjónvarpinu, þá er hann farinn að svitna og kominn með óráð. Einu sinni, þegar ég var ennþá minni, þá var ég líka svona. En ekki lengur. Ligga ligga lái.
Það verður samt alveg ábyggilega nógu mikið mál hjá mér að fara að ferðast með litla guttann...ein...
Týpískt að maður lendi svo við hliðina á einhverju ekta íslensku viðskiptafífli, sem heldur að börn séu bara til að sitja og halda kjafti þegar hann veifar hendinni eða gefur einhverjar vafasamar augngotur.
En ég fer nú ekki að stressa mig neitt á því. Hann getur þá bara setið einhvers staðar annars staðar.
Jájájá....... Það er svo sorglega lítið að gerast hérna, að það er ekki einu sinni fyndið.
Ekki fer ég að tala um það sem er í fréttum hér, þar sem það er ekkert nema einhver morð og nauðganir og barnaofbeldi. Jafnvel allt þetta blandað saman. Kannski engin furða að maður sé orðinn hálf-beyglaður af að búa hérna... En það breytist nú bráðum..!
Þangað til næst, adios.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home