Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

01 nóvember 2003

Hmm, er þetta svo kannski bara ekkert að virka hjá okkur?
Klukkan 8:45 á laugardagsmorgni sitjum við mæðginin og horfum á Svampbob Fyrkant (Spongebob Squarepants) með öðru. Fyndnir þættir. Rifja upp í rólegheitunum hvað ég hef verið að láta oní mig síðustu daga, þar sem ýmsir grunsamlegir verkir eru farnir að gera vart við sig víðsvegar um meltingarkerfið. Ætli þetta sé kannski hinn fyrrnefndi mellanöl sem er að gera uppreisn í mér..?

Klukkan hálfátta í gærkvöldi var hringt dyrabjöllunni. Grunsamlegt. Ég fer til dyra á meðan Ásgeir er viðbúinn öllu inní stofu með hafnaboltakylfu í hönd... OK, segi það nú kannski ekki alveg. En þegar ég opna dyrnar, standa tveir litlir, krúttlegir og uppáklæddir piltar, með sitthvortn glæra plastpokann og biðja um Trick or Treat! Það fannst mér bara mest skemmtilegt, svo skemmtilegt að ég gaf þeim heila öskju af smákökum. Við sáum einmitt fyrir okkur að þeir hafi hlaupið til allra hinna krakkanna og gefið okkur rokkprik, og fullt af þeim, fyrir magnið af góðgæti sem við ættum uppí skáp. Þannig að ég dreif í ð klippa niður karamellusúkkulaði og finna Dumle karamellurnar, henti öllu í skál og beið spennt eftir fleiri grislingum, litlum nornum og Festerum. En.... engir fleiri komu. Það fannst mér fúlt.

En hvað ætli gerist ef maður á ekki nammi handa greyunum? Ætli nornirnar breyti manni í frosk? Og Drakúla búningarnir sjúgi úr manni blóðið, með súkkulaði lengst útá kinn? "Mmmm, ekkert smá góður dessert eftir allt hitt nammið!"

Svo voru að sjálfsögðu sýndar ofsa hryllingsmyndir í gærkvöldi í tilefni dagsins... Addams Family Reunion, með Darryl Hannah sem Morticia...! Yep, það fannst mér líka baaaara asnalegt.

Lítill gutti farinn að horfa óþægilegum löngunaraugum á lyklaborðið........
Meira í kvöld, ef ég er í stuði. Adios!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home